*hóst*hóst*hóst*
17.11.2008 | 13:02
Já halelúja....er langt síðan að ég bloggaði síðast eða??? Nei ég bara spyr 
Hef ekki nennt að blogga neitt,er orðin löt í þessu. Þegar ég er í tölvunni þá er ég mest á Facebook. Þar læt ég inn myndir og sonna. Er orðin Facebook fíkíll með meiru, segji ekki meir um það haha...
Krakkarnir hafa það fínt. Gengur vel í skólanum hjá þeim öllum. Svo sem ekkert mikið með þau að segja.
Vorum með Halloween "partý" hérna þegar Halloween var. Skreyttum og sonna og bauð ég Höllu vinkonu og syni hennar. Það var bara fínt. Svo núna næsta laugardag verður Thanksgiving matarboð,og kemur hún Halla mín þá líka og amma Rose. Verðum með kalkún,pumpkin pie og allt þetta ameríska dóterý,hvað gerir mar ekki fyrir kallinn sinn haha...hann mun sjá um kalkúninn og ég á víst að sjá um rest *hóst* og hef ég aldrei haft Thanksgiving dinner áður þannig veit ekki hvernig þetta kemur út hahaha.... Ég sem sagt bý til pumkin pie sem ég hef aldrei gert og svo heimatilbúna kartöflumús sem ég hef bara aldrei gert heldur,ásamt Yams og fleiru sem verður í boði
Það verður fjör.
Búið er að setja upp jólaljósin á svalirnar. Kallinn er fyrir austan alla vikurnar að vinna og kemur heim á föstudögum og er um helgar. Og ég má ekki láta upp jóladótið nema hann sé heima haha...soddan jólakall þessi elska. Og auðvitað bíð ég með þetta þangað til. Skreytum allt næstu helgi bíst ég við JEIIIIII !! 
Búin að kaupa flest allar jólagjafirnar. Eigum nokkrar eftir. Svo er að pakka öllu þessu helv#$% inn !!! Jú jú...voða gaman fyrstu 2-3 gjafirnar og svo bara
*pjúk* hahahah..... Enn að pakka inn til að senda út til fjölsk. Jason,búið að taka mig 1-2 vikur að drífa þetta af,ekki enn búin 
Beggi bróðir var hérna um helgina og stelpurnar mínar fóru til pabba síns. Restin af fjölskyldunni og sem sagt Beggi bróðir fór á tónleikana sem voru í Laugardalshöll á laugardaginn,var það bara svaka gaman ! Við hjónin vorum nú ekki að nenna að fara og vildum hafa cosy heima bara,en krakkarnir vælu yfir að vila fara og hvað..........haldið ekki að við hjónkornin skemmtum okkur betur en krakkagríslingarnir. Eftir 1 klst var Kelcha farin að kvarta að hún væri þreytt og vildi fara heim.....nokkrir Coke sopar löguðu það og komst hún aftur í stuð,í endanum var Jr farin að sofa við veggin sem við sátum við hahhahah....algjörir sveppalingar. En ég vildi sko ekki fara fyrr en ég var búin að sjá Sálin !! Halla mín kom svo seinna til að sjá Sálina og fórum við svo eftir það. Þetta var bara ágætis tilbreyting....voð gaman 
Það er frí í vinnunni í dag....eða starfsdagur sem við erum búin að vinna af okkur. Þannig ég henti í 3 vélar í morgun og bakaði smákökur...man ég er dugleg !!
Jæja,þetta ætti að duga í bili fyrir ykkur. Skal svo reyna að hafa ekki svona langt á milli bloggs næst muahaha.....
Vonandi njótið þið cosynessið svona rétt fyrir jól og elskið hvort annað. Og munið að engin fær of mörg knús....knúsið þau sem þið elskið og segjið þeim hversu mikið þið elskið þau 
Knús til ykkar elskurnar xxxxxx
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
BLONDE ?
27.9.2008 | 15:47
Jamm komin með ljósara hár. Varð bara að sýna ykkur. Hef alltaf verið með DÖKKT hár þannig fyrir mér er ég hreinlega orðin ljóska hahah...
Hvort er svo betra ????
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
Update on my life
16.9.2008 | 18:54
Jæja komin tími á smá blogg eða ? hehe...
Jason er komin í íslensku tíma á kvöldin. Fyrsti dagurinn er í dag og er hann þar akkúrat núna :c) Hann var mjög spenntur og ég held að hann verði rosa fljótur að læra :c)
Krakkarnir eru mjög dugleg í skólanum og eru Kelcha og Jr dugleg að læra íslensku. Við mættum samt vera duglegri að tala hana hérna heima. Einu skiptin sem hún er töluð er eiginelga bara ég við Emmu haha.... Hún svei mér þá að Emma mín er orðin frekar spræk í enskunni haha.. skilur flest allt og byrjuð að tala hana. En já verð að vera duglegri að tala íslensku hérna. Kelcha er orðin duglega að tala við Emmu á íslensku þannig þetta er allt að koma :c)
Ég er aftur farin í ræktina JEIIIIII. Byrjaði á fimmtudaginn. Fór svo á laugard. morgunin og svo í gær. Verð svo að taka Emmu með mér þar sem Jason er í íslensku tíma eftir vinnu. En já,vigtaði mig á fimmtudaginn og o my heck ! Ég er 10 kg ÞYNGRI en ég var fyrir ári !!! 10 !!! Þá hugasði ég....hingað og ekki lengra takk fyrir ! Var næstum farin að væla þegar ég steig á vigtina þarna uppfrá :c( En ég er bara að labba/skokka/hlaupa á brettinu og svo maga æfingar og svo eitthvað handa og fóta pressur og sonna inná milli. En ég er aðalega bara á brettinu og svo magaæfingar. Og svo er ég byrjuð að taka mig á í mataræðinu,sem sagt hætta að borða svona MIKIÐ alltaf í einu. Bryjuð að borða morgnun mat áður en ég fer í vinnuna, fá einn skammt á diskinn. Og svo borða meira af ávöxtum inná milli og sonna. Og ekki gos eða nammi. Læt mig fá laugardaga sem nammi daga. En þá ekki að háma í mig allan daginn haha... En já,ég vona að ég get farið að koma mér í normal kg :c( Hef ekki verið "normal" síðan ég átti hana Victoriu mína sem er komið 8 1/2 ár síðan !! Þannig held að það sé komin tími til núna.
Og svo erum við komin á 7 manna bíl finally !! Einn elskulegur maður tók Toyotuna á lánunum þannig við gátum losnað við hann. Og fengum okkur VW Touran. Og það er ÆÐI að geta farið ÖLL saman þegar við viljum. Og stelpurnar 2 (unglingarnir á heimilinu hehe) eru aftastar og við heyrum varla í þeim haha...very nice muahah....
Svo er ég að verða FRÆNKA !! Ohh mig hlakka svo til að ég er að deyja úr spenningi ! "Litli" bróðir er að verða pabbi og barnið fæðist í febrúar. Oh get ekki beðið að verða frænka og fá litla krúttið "lánað" once in a while haha....
Jæja kallinn er komin heim og er voða æstur að tala íslensku við mig svo ég hef þetta nóg í bili haha...
Knús og kossar til ykkar
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Gaman að þessu
15.9.2008 | 19:33
Hef ekki verið dugleg að blogga
En kem með eitthvað blogg bráðlega 
Vildi bara benda ykkur á þessa skondna síðu http://www.yearbookyourself.com/ þeir sem eru á facbook ættu að kannats eitthvað við þetta :c) En þetta er síða sem þú lætur andlitsmynd af þér í og getur breytt þér í eitthvað sértakt tímabil. Eins og sést hérna á myndum af mér hehe....
Góða skemmtun 
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Klukk !
7.9.2008 | 15:10
Ég var klukkuð af Helgu (reynalds) og best að svara því núna:
Fjögur störf sem ég hef unnið um ævina
- Nóa og Siríus
- Hrafnisti Hfj
- Heiilishjálp
- Leikskóla
Fjórar bíómyndir sem ég held upp á
* Mamma Mia
* Walk The Line
Dumb and Dumber
The Notebook
Fjórir staðir sem ég hef búið á
Reykjavík
Stykkishólmur
Kópavogur
Hafnarfjörður
Fjórir sjónvarpsþættir sem mér líkar
Design Star
One tree hill
High School Reunion
- Americas/Britains Next Top Model
Fjórir staðir sem ég hef heimsótt í fríum
* Mallorca
* USA
- Uk
- ???
Fjórar síður sem ég skoða daglega fyrir utan blogg
* mbl.is
* barnaland.is
- facebook.com
- myspace.com
- Kjúklingur
* Mexikóskur matur
- Pizza
- Fiskur
Fjórar bækur sem ég hef lesið oft
- Les ekki mikið bækur
Fjórir bloggarar sem ég klukka
- Jorunn
- Bertha
- Hulda 2002
- bryndisr
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Bíll til sölu ! (neyð)
5.9.2008 | 07:28
Hér er 6 manna fjölskylda á bíl sem við komumst ekki öll í.
Erum búin að finna bílinn sem við pössum öll í,nema.........við þurfum að losna við okkar "gamla" bíl fyrst :c(
Það þarf að laga bílinn okkar sem er Toyota Avensis árg 99,svartur, m/geislaspilara, topplúgu sem þarf að laga,er á heilsársdekkjum, vélin er 1600 og keyrður ca. 209.000 km.
Ef einhver er duglegur að laga bíla og vill einn "vinnubíl" eða eitthvað þannig þá erum við með bílinn fyrir þig :c)
Bíllinn er á lánum og er hægt að fá hann á lánunum sem er ca.15-19.000 kr á mánuði (fer eftir genginu) Það er 289.000 eftir af láninu.
Eða fengið hann á 250.000 kr staðgreitt.
Við yrðum MJÖG þakklát fyrir þann sem gæti tekið bílinn okkar að sér og lagað hann svo við fjölskyldan getum farið öll saman í bíltúr :c)
Eina myndin sem ég á af honum,tekin í fyrrasumar:
http://s3.frontur.com/img/35/20070625224728_0.jpg
Annað hvort að senda mér skilaboð eða hringja í síma 659-1393 Melanie eftir klukkan 15 :c)
Auglýsing sem ég er búin að láta annars staðar og datt í hug að láta hingað líka. Þar sem við VERÐUM að losna við bílinn til að fá bílinn sem bíður okkar
Ef einhver veit um duglegan mann sem vill dunda sér að laga bílinn þá endilega hafið samband.
Þetta er helsta sem er að honum:
Helsta sem er að honum er:
* Vélarljósið logar,eflaust vegna þess að það er einhv. kraftsía í honum og þarf að fá oringinal síuna.
* Pústar út framanverðu.
* Bremsudiskur að framan orðin ljótur
* Hjólalega að aftan vinstramegin
* Eflaust komin tími á að skipta um tímareim
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Hún á afmæl´ í dag...
2.9.2008 | 17:40
....hún á afmæli ég sjálf.....ég á afmæli´í dag !! 
Lofa að blogga bráðum 
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
ÁFRAM ÍSLAND !!
22.8.2008 | 19:07
Allir að horfa á sunnudagsmorgun !! Well efast stórlega að engin muni horfa haha.... Allavega mun ég vakna og horfa OFCOURES !!!
!!!! ÁFRAM ÍSLAND !!!!!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Brjósklos,biluð talva,bilaður bíll....
16.8.2008 | 15:57
Aarrgg,allt að gerast í einu. Kallinn komin mð brjosklos og hefur ekki getað unnið í meira en viku....fer aftur til læknis næsta föstudag. Og hann hefur engan rétt á neinum bótum eða neinu svoleiðis þar sem hann er bara búin að vinna síðan maí
Þannig ég er orðin soldið stressuð
Vonandi fer honum að batna og getur farið að vinna aftur bráðum.
Bíllinn er eitthvað að bögga okkur. Veit ekki hvað er að honum. Eitthvað vesen þegar verið er að starta honum. Vélarljósið er búið að vera á í nokkrar mánuði og er hann búin að fara í skoðun og á verkstæði og í smurningu og allir segja að hann er í lagi........uhhh OBVOUSLY NOT ! Svo lendir þetta allt á mér þar sem Jason getur ekki mikið gert eða veit ekkert hvert á að fara með bílinn. Og ekki er ég góð í bílamálum
Langa bara í nýjan bíl.....7 manna bíl sem við getum ÖLL passað í. Komumst aldrei neitt öll fjölskydan að gera eitthvað. Frekar fúlt.
Og svo er tölvan eitthvað að byrja að böggast.....slekkur alltaf á sér when ever she wants ! Og mörgum sinnum á dag núna.....
argasta arrg ! Þarf að fara með hana og láta tjékka á henni.
Ég byrja að vinna aftur á mánudaginn. Hlakka soldið til að komast í eitthvað annað....en samt,væri alveg til í að vera heimavinnandi á launum hehehehe....
Krakkarnir fara í skólasetningu á föstudaginn. Þau eru spennt
Ég er búin að kaupa allt skóladótið fyrir þau.....kostaði slatta thank u
Ohh well....svona er þetta bara.
Krakkarnir eru bara góð og dugleg. Maður getur verið soldið þreytt á öllum 4. But in the end it´s worth it 
Æjj vildi bara pústa smá...bara smá svona vælu blogg hehe.... Maður má það svona einu sinni...þaggi 
Knús til ykkar....og hafið það gott það sem eftir er af helginni 
![]() |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
YESSSS...
31.7.2008 | 16:12

..loksins komin nýtt útlit !!! Ekki nema 2 stykki en samt....betra en ekkert. Búin að fá ógeð af hinum..ekkert varið í það. Þannig ég var ekki lengi að breyta 
Já jesús....hvað var málið með hitann í gær !! Emma mín brann....ég brann....Victoria og já...það var sko heitt ! Fórum í Nauthólsvík var frekar nice.
Ekkert búið að gera í smarfríinu. Bara chillað. Þar að auki eigum við ekki nógu stóran bíl til að fara öll saman eitthvert
Var að pæla að fara kannski til Stokkseyrar eða eitthvað um helgina...en það er nátturlega ekki hægt. Nema að skilja eitt barn eftir heima....sem er nátturlega ekki gert. Þannig,we r stuck at home all summer. Æjj ég kann ekkert á svona bílamál og að losna við okkar bíl og eitthvað blabla.....finnst þetta eitthvað svo mikið mál
Svo hrædd um að verða plötuð á bílasölun um. Þar sem ég kann ekkert á þetta dót. Anyways,sjáum bara til hvernig þetta fer.
Æjj ætlaði nú ekkert að blogga....en þar sem ég var að dúlla mér að breyta síðunni var ég nátturlega að blogga smá í leiðinni. Blogga meira seinna.
See ya later 
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)




beggibestur
jorunn
bertha
thoraasg
estro
hulda2002
benjonikla
aslaugosk
kollaogjosep
olafurfa
nonniblogg
maggy78
palmig
raudka
kristjanas81
steinunnolina
solrunedda
almaogfreyja
aloevera
bryndisr
umhetjuna
jonaa